Sigfús Stefánsson og Hjalti Gíslason í Bíói Paradís á morgun
Heimildarmyndin Ég er ekki svo fallegt landslag verður frumsýnd í Bíói Paradís á morgunkl. 20:00 en hún fjallar um vinina Sigfús Stefánsson og Hjalta Gíslason á Hofsósi sem saman sækja sjóinn eftir að þeir komast á eftirlaun, rétt eins og þeir höfðu gert í fimmtíu ár fram að því.
Myndin er eftir Emiliano Monaco fyrrverandi tengdason Sigfúsar og var fyrst sýnd á kvikmyndahátíðinni Festival dei Popoli í Flórens í nóvember á síðasta ári. Ráðgert er að sýna hana á Hofsósi á sjómannadaginn.
Í Fréttablaðinu er viðtal við Emiliano sem segir að það hafi tekið hann sex ár að vinna við myndina þar af tók hann upp í tvö sumur og tvo vetur á Hofsósi.
Viðtalið er hægt að nálgast HÉR í Fegurð hversdagsins.