Sigur á Álftanesi 2-1
Meistaraflokkur kvenna hélt á Bessastaðavöll á föstudag og mættu liði Álftnesinga. Á heimasíðu Tindastóls segir að hvorki Forseti Íslands né dómarateymi leiksins voru mætt á svæðið og var því leiknum seinkað um 15-20 mínútur. Þær skýringar voru gefnar að um mistök hjá KSÍ væri að ræða. Þegar dómarinn hafði skilað sér í hús og búið að var að ræsa línuverði gat leikurinn hafist í rjómablíðu á Álftanesi.
-Við gátum ekkert í fyrri hálfleik en staðan var 1-1 í hálfleik eftir að við fengum víti og Álftanes tvö víti. Kristín Halla varði fyrra vítið sem Álftanes fékk glæsilega en var óheppin í því seinna því hún náði ekki að slá boltann alveg nógu langt út, þannig að hann endaði í stöng og inn. Við breyttum um taktík, fljótlega í seinni hálfleik og eftir það áttum við svo til leikinn en náðum þó ekki að skora fyrr en á síðustu mínútum hans eftir að Hugrún var felld innan vítateigs er hún var að komast í skotfæri. Rakel Hinriks skoraði úr vítinu af miklu öryggi, segir Pétur Björnsson þjálfari liðsins.
Rakel hafði einnig skorað úr fyrra vítinu sem Tindastóll fékk á 5. mín. og kom þeim í 1-0.
-Ég segi náttúrulega ekkert um dómarann frekar en fyrri daginn en hann átti ekki góðan leik, var reyndar alveg ömurlegur og ætti fyrir það fyrsta að sjá um að hann og línuverðir mæti á réttum tíma til að geta undirbúið sig sem best fyrir leikinn og síðan í öðru lagi gengur ekki að flauta brot á 25-30 sek. fresti, það er knattspyrnuleik ekki til framdráttar, segir Pétur óhress með dómaratríóið.
Liðið hefur verið í fínum málum í sumar og gengið mun betra en undanfarin ár. Sjá má að mórallinn er góður og stelpurnar spila sem heilstætt lið. -Liðið er nú í 4. sæti deildarinnar og nú er það í okkar höndum að halda þessu sæti, segir Pétur að lokum.