Sigurjón Leifsson kjörinn formaður UMSS
Í gær var haldið, í mötuneyti FNV á Sauðárkróki, 92. ársþing Ungmennasambands Skagafjarðar að viðstöddum 40 fulltrúum aðildarfélaga þess. Fram fóru venjubundin þingstörf en fram kom í ársreikningum að tap varð á rekstrinum.
Tekjur síðasta árs voru rúm áttahundruð þúsund krónum lægri en á fyrra ári og munaði mestu að ekki var um neinn fjárstyrk að ræða frá sveitarfélögunum í Skagafirði til reksturs sambandsins. Alls námu tekjurnar kr. 4.311.240 en rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði kr. 4.844.257.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir formaður UMFÍ heiðraði samkomuna með nærveru sinni og hvatti aðildarfélög UMSS til að fjölmenna á ULM 2012 sem haldið verður á Selfossi um verslunarmannahelgina. Þá hvatti hún þingheim til að samþykkja fyrirliggjandi tillögu til stjórnar um að sækja um að halda Landsmót UMFÍ 2017 enda var hún mjög ánægð með framkvæmd UMSS að Landsmótum hingað til. Þá veitti Helga þremur aðilum Starfsmerki UMFÍ fyrir þeirra framlag til hreyfingarinnar en þau hlutu Hjörtur Geirmundsson, Jónína Stefánsdóttir og Hrafnhildur Pétursdóttir.
Garðar Svansson sem situr í stjórn ÍSÍ afhenti sambandinu gjöf í tilefni af 100 ára afmæli ÍSÍ en þar var um bók og fána að ræða. Þá afhenti hann knattspyrnudeild Tindastóls viðurkenningu sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
Sigrún Þóra Karlsdóttir ung sundkona á Sauðárkróki er handhafi Magnúsarbikarsins sem gefinn var til minningar um Magnús Valbergsson og veittur var til margra ára stigahæsta sundmanni í Fljótum. Hann er nú í vörslu UMSS.
Síðasta starfsár hefur Sigurjón Leifsson verið starfandi formaður UMSS, fór í þá stöðu sem varaformaður. Í gær var kosið í nýja stjórn og var Sigurjón kjörinn formaður en aðrir sem fengu kosningu voru Rúnar Vífilsson og Jón Daníel Jónsson en áfram sitja þau Elisabeth Jansen og Þröstur Erlingsson. Hjalti Þórðarson lauk stjórnarsetu og voru honum þökkuð góð störf í þágu sambandsins.