Silkitoppar á Syðstu-Grund

Tveir ókunnir fuglar gerðu vart við sig í morgun á Syðstu-Grund í Skagafirði en af myndum að dæma er hér líklega um silkitoppa að ræða. Silkitoppa eða bombycilla garrulus er, samkv. Wikipedia, spörfugl af silkitoppaætt sem svipar til stara að stærð og vexti. Hann hefur breiðan topp og rauðbrúnan til grábrúnan lit og svartan blett á hálskverk og við augu og gult endabelti á stéli. Einnig eru gult, hvítt og rautt í væng.

Það er aldrei að vita nema Hinrik á Syðstu-Grund fari að rækta silkitoppa í framtíðinni. Mynd: Kolbrún

Á fullorðnum fuglum er gult eða hvítt V á enda handflugfjaðra. Silkitoppa verpir í furuskógum nyrst í Evrópu, Síberíu og Ameríku. Utan varptíma lifir hún á berjum og flakkar sum ár í hópum út fyrir venjuleg vetrarheimkynni.

Meðfylgjandi myndir af silkitoppunum voru teknar í morgun á Syðstu-Grund.

Fleiri fréttir