Sjávarleður heimsótt af Kristjáni Má Unnarssyni
Kristján Már Unnarsson var með skemmtilegan og fróðlegan þátt frá Sauðárkróki á Stöð 2 í gærkvöldi sem ber heitið „Um land allt". Þar heimsótti hann Sjávarleður sem breytir slori úr íslenskum fiskvinnslum í verðmæta útflutningsvöru til frægustu hátískufyrirtækja heimsins.
„Fyrirtækið Sjávarleður á skagfirskar rætur en aðaleigendur eru fjölskylda á Dalvík ásamt hjónunum Gunnsteini Björnssyni og Sigríður Káradóttur, sem eru Skagfirðingar í húð og hár, og þau vinna bæði í fyrirtækinu. Fyrirtækið á sér 43 ára sögu en það var hópur manna undir forystu Pálma í Hagkaup og síðar einnig Eyjólfs Konráðs Jónssonar sem byggði upp sútunarverksmiðjuna Loðskinn til að verka gærur“, segir á Vísi.is en þar er hægt að nálgast þáttinn.