Skagafjörður kemur vel út í samanburði ASÍ á gjaldskrám fyrir skóladagvistun
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrá fyrir skóladagvistun ásamt hressingu og verði á hádegismat fyrir yngstu nemendur grunnskólanna hjá 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins sem tók gildi frá 1. janúar 2013. Mikill verðmunur er á heildargjaldi fyrir skóladagvistun með hressingu og hádegismat milli sveitarfélaganna. Sveitarfélagið Skagafjörður kemur vel út úr samanburðinum þrátt fyrir háa prósentuhækkun.
Á vef ASÍ segir að lægsta mánaðargjaldið fyrir skóladagvistun m.v. 63 tíma á mánuði, hressingu og hádegismat hvern dag er hjá Sveitarfélaginu Skagafirði á 20.139 kr./mán. en hæsta gjaldið er hjá Garðabæ 33.194 kr./mán. Verðmunurinn er 13.055 kr. eða 65%. Öll sveitarfélögin sem skoðuð voru hafa hækkað gjaldskrána milli ára nema Hafnarfjörður og Fjarðarbyggð.
Mesta hækkun síðan í byrjun árs 2012 á þriggja tíma daglegri vistun ásamt síðdegishressingu í 21 dag er hjá Akraneskaupstað sem hefur hækkað gjaldskránna um 16%, hjá Sveitarfélaginu Skagafirði um 9% og hjá Reykjavíkurborg um 6%.
Mesta hækkunin á hádegismat er hjá Sveitarfélaginu Skagafirði sem hækkaði gjaldið um 27% og Ísafjarðarbær um 9%. Ekki er tekið tillit til seðilgjalda eða annarra innheimtugjalda, sem leggjast ofan á gjaldið sem er innheimt.
Þrettán sveitarfélög af þeim fimmtán sem skoðuð voru hafa hækkað hjá sér gjaldskrána fyrir skóladagvistun með hressingu á milli ára (ekki hádegismatur). Lægsta mánaðargjaldið er hjá Sveitarfélaginu Skagafirði 13.167 kr./mán. en hæsta gjaldið er hjá Garðabæ 24.206 kr./mán. verðmunurinn er 11.039 kr. eða 84%. Mesta hækkun á gjaldskránni er á Akranesi um 16% eða úr 16.359 kr./mán. í 18.900 kr./mán. sem er 2.541 kr. hækkun.
Sveitarfélagið Skagafjörður hækkar gjaldskrána úr 12.096 kr./mán. í 13.167 kr./mán. sem eru 1.071 kr. hækkun á mánuði eða 9%. Óbreytt gjaldskrá er hjá Fjarðarbyggð og í Hafnarfirði hefur gjaldskráin lækkað um 8% úr 20.490 kr. í 18.942 kr.
Þegar skoðaður er heildarkostnaður fyrir skóladagvistun með hressingu og hádegismat í skólum landsins, er Sveitarfélagið Skagafjörður með lægsta verðið fyrir þessa þjónustu 20.139 kr./mán. en hæsta verðið er hjá Garðabæ 33.194 kr./mán. sem gerir 13.055 kr. verðmun á mánuði eða 65%. Á meðfylgjandi mynd má sjá að heildarkostnaðurinn hækkar hjá öllum sveitarfélögunum, nema Fjarðarbyggð og Hafnarfirði sem lækkar heildarkostnaðinn um 4%. Mest hækkar gjaldskráin hjá Sveitarfélaginu Skagafirði, eða úr 17.577 kr./mán. í 20.139 kr./mán. sem er hækkun um 2.562 kr. á mánuði eða 15%, hækkunin á Akranesi er 13%.