Skagaströnd tryggt vatn fyrir baðlaugar við Hólanes

Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri Rarik og Alexandra Jóhannesdóttir sveitarstjóri við undirskriftina. Mynd af Skagaströndis.
Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri Rarik og Alexandra Jóhannesdóttir sveitarstjóri við undirskriftina. Mynd af Skagaströndis.

Sveitarfélagið Skagaströnd og Rarik undirrituðu á dögunum samning um afhendingu á vatni vegna uppbyggingu á baðlónum við Hólanes á Skagaströnd. Böðin verða staðsett við sjávarmálið á Hólanesi sem er miðsvæðis á Skagaströnd og skartar tilkomumiklu útsýni yfir Húnaflóann og Strandafjöllin.

Unnið hefur verið að uppbyggingu glæsilegra baðlóna við Hólanes á Skagaströnd, á milli gamla barnaskólans og Nes listamiðstöðvar og er gert ráð fyrir því að ​framkvæmdir geti hafist á árinu.

Mynd af mögulegri uppbyggingu
sjóbaða á Skagaströnd.
Mynd. Skagastrond.is.

Á  vef Skagastrandar segir að sveitarstjórn hafi tekið samninginn við RARIK fyrir á síðasta fundi sínum þann 15. desember sl. Í bókun sveitarstjórnar segir m.a.:
„...Í samræmi við samninginn sem gerður var milli Skagastrandar og RARIK í desember 2011 þá er í nýju samkomulagi milli sveitarfélagsins og RARIK áréttað að sveitarfélaginu verði tryggt vatn fyrir baðlaugar, en vegna ástands vatnsöflunar fyrir veituna þá er mælt um takmarkanir á afhendingu á heitu vatni til baðlauga á meðan verið er að leita að meira vatni. Sveitarstjórn fagnar því að RARIK tryggi afhendingaröryggi á vatni til sjóbaða og telur ljóst að miðað við gefnar forsendur muni umræddar takmarkanir ekki hafa áhrif á fyrirhugaða uppbyggingu og rekstur. Samningurinn var samþykktur samhljóða af sveitarstjórn og var sveitarstjóra falið að undirrita samninginn.“

Jafnframt kemur fram á Skagastrond.is að sveitarfélagið fagni áfanganum og er fullt eftirvæntingar að halda áfram að vinna að þessari mikilvægu uppbyggingu sem glæsilegu baðlónin við Hólanes verða fyrir Norðurland vestra.

Sjá nánar á Skagaströnd.is

Tengdar fréttir:
Breyting á deiliskipulagi við Hólanes
Skagstrendingar hyggjast reisa glæsileg baðlón við Hólanes

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir