Skagfirðingar í landsliðshópi FRÍ
Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ hefur nú valið nýjan landsliðshóp að loknu utanhússtímabili 2012. Hefur einnig verið myndaður nýr Ólympíuhópur. Skagfirðingarnir Jóhann Björn Sigurbjörnsson spretthlaupari og Björn Margeirsson millivegalengda- og langhlaupari sem keppa undir merkjum UMSS eru í hópnum.
Þeir nafnar Jóhann Björn og Björn hafa verið kallaðir í landsliðshitting þann 27. október næstkomandi en um kvöldið verður haldin uppskeruhátíð FRÍ.
Landsliðshópinn má sjá HÉR