Skagfirðingar í Sterkasta kona Íslands
Sterkasta kona Íslands var haldin í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ í gær en þar kepptu þrjár brottfluttar kjarnakonur úr Skagafirði. Keppendur voru alls 14 svo Skagfirðingar áttu stóran hluta keppenda. Keppnin var haldin í tengslum við fitnesssýninguna Expo 2012.
Skagfirsku valkyrjurnar heita:
- Elísabet Stefánsdóttir í yfir 75 kg flokknum
- Margrét Ársælsdóttir í -75 kg flokknum
- Pálína Ósk Ómarsdóttir í -75 kg flokknum
Að sögn Ársæls Guðmundssonar stóðu þær allar stóðu sig með prýði. Bestum árangri Skagfirðinganna náði Margrét en hún hafnaði í 3. sæti í sínum flokki og sigraði hún í keppnisgreininni að lyfta 100 kg sem oftast í réttstöðu á 75 sekúndum. Náði Margrét að lyfta lóðunum alls 26 sinnum. Pálína Ósk sigraði í keppnisgreininni að draga fiskikar með 360 kg lóðum sem lengst á 35 sekúndum og var þar að leiðandi með besta tímann.
Pálína dregur af öllum krafti.
Þess má geta að Elísabet Stefánsdóttir er ættuð frá Gili, Pálína Ósk er dóttir Ómars og Vilborgar á Gili og Margrét er dóttir fyrrum sveitarstjóra Skagfirðinga, Ársæls Guðmundssonar og Gunnhildar kennara við Árskóla.
Hér er facebook-síða viðburðarins.