Skagfirðingasveit fær nýjan sleða

Björgunarsveitin Skagfirðingasveit fékk afhentan nýjan Lynx 3900 sleða frá Ellingsen sl. föstudag. Á heimasíðu Skagfirðingasveitar kemur fram að þetta hafi  verið liður í endurnýjun á tækjum sveitarinnar til að tryggja að sveitin sé klár í allt sem þarf.

Nú á sveitin þá þrjá nýlega Lynx sleða, Nýja 3900 sleðann og tvo aðra Lynx sleða en sveitin seldi einn eldri Lynx Rave sleða til að geta keypt þennan nýja, segir á heimasíðunni.

Fleiri fréttir