Skagfirsk gæðabönd á Airwaves

Þrjár skagfirskar sveitir taka þátt í Iceland Airwaves tónleikunum sem nú fara fram í Reykjavík en þær eru Úlfur Úlfur, Contalgen funeral og Funk that shit. Auk þeirra troða upp einsömul þau Fúsi og Silla, Gillon og loks Joe Dupius. Funk that shit lék á miðvikudagskvöld á Amsterdam en í gærkvöldi lék Contalgenið í Iðnó og Úlfur Úlfur sté á sviðið á Þýska barnum.

Í dag klukkan 18:30 munu Úlfarnir verða á Kex og annað kvöld troða þeir upp á Faktory en á Mánabar ætla Fúsi og Silla að spila og syngja klukkan 17:00 á morgun. Strax á eftir ætlar Gillon eða Gísli Þór Ólafsson að slá ástrengi og flytja sína músík um klukkan 17:30 en Joe Dupius eða Andri Sigurðsson slær botninn í sólóatriði Contalgenmeðlima áður en þau sjálf hópast upp á sviðið og mynda stórsveitina Contalgen funeral sem munu galdra fram gleðitónlist sína um klukkan 18:30.

Hér fyrir neðan má sjá myndband með Úlfi Úlfi og Contalgen funeral.

http://www.youtube.com/watch?v=kwtMF2axto4&feature=player_embedded

 

http://www.youtube.com/watch?v=shPQhG9bENk

 

Fleiri fréttir