Skagfirskir hundar gera það gott
Á hundasýningu HRFÍ, sem haldin var helgina 25. – 26. ágúst síðastliðinn, voru sýndir 719 hreinræktaðir hundar af 83 hundategundum. Að þessu sinni voru dómararnir sex frá fjórum löndum, það er Belgíu, Finnlandi, Írlandi og Slóveníu og var dæmt í sex sýningahringjum samtímis. Einnig má geta þess að öflugt barna- og unglingastarf er starfrækt innan félagsins og tóku 25 ungmenni þátt í keppninni að þessu sinni, en þar meta dómararnir samband mannsins við hundinn.
Nokkrir aðilar úr Skagafirði mættu með hunda sína og gekk vel. Í tegundahópi 8 keppti rakki af tegundinni Amerískur Cocker Spaniel með rægtunarheitið Eldhuga Catch A Dream en gengur undir nafninu Tangó dags daglega. Skemmst er frá því að segja að hann varð efstur í sínum flokki, flokki rakka meistara, og hlaut um leið sína fjórðu og síðustu tilnefningu til alþjóða meistarans. Áður var hann búinn að vinna til Íslenska meistarans og er eigandi Tangós, Berglind Ottósdóttir. Var hún að vonum ánægð með árangur hundsins.
Valdís og Bangsi lukkuleg með verðlaunabikar eftir góða keppni í fyrra.
Bangsi, hundur Valdísar Rúnarsdóttur sótti sitt síðasta stig til alþjóðlegs meistara og varð sá stigahæsti af briard kyni á landinu. Hefur hann möguleika á því að verða sá stigahæsti á árinu en næsta keppni verður haldin í upphafi vetrar.