Skagfirskur matur eldar fyrir eldra stigið en Videosport það yngra
Fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar hefur ákveðið að gengið verði til samninga við Skagfirskan mat ehf. um framleiðslu hádegisverðar fyrir Árskóla eldra stig og leikskólann Ársali eldra stig en Videosport ehf. um framleiðslu hádegisverðar fyrir Árskóla yngra stig og Ársali yngra stig.
Fyrirkomulag þetta mun gilda til 31. maí á næsta ári hvað grunnskólann varðar en til 12. júlí 2013 vegna leikskólans. Jafnframt var samþykkt á fundi nefndarinnar í gær að ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag liggi fyrir í lok apríl 2013.