Skeifan kom á óvart
Við sögðum frá því að Svala Guðmundsdóttir frá Sauðárkróki hefði hlotið Morgunblaðsskeifuna er skeifudagurinn var haldinn hátíðlegur á Hvanneyri á sumardaginn fyrsta. Verðlaunin kemur í hlut þess nemanda sem stendur sig best í reiðmennsku- og frumtamninganámi vetrarins. Feykir sendi Svölu nokkrar spurningar.
Kom þessi viðurkenning þér á óvart?
Já, hún gerði það. Hafði ekki leitt hugann að henni sérstaklega en hef þó í vetur verið að leggja mig fram.
Hverju viltu þakka þennan árangur?
Fyrst og fremst kennurunum Hauk og Randi á Hvanneyri , góðri kennslu frá Hólum og ég var einnig heppin með hesta sem að hentuðu verkefninu mjög vel, það skiptir miklu máli í þessu námi. Síðan hefur pabbi auðvitað kennt mér helling.
Af hverju Hvanneyri?
Ég er búin með fyrsta árið á Hólum og líkaði það mjög vel. Mig langaði til þess að skipta um umhverfi og fannst Hvanneyri tilvalinn staður.
Hvar ertu stödd í náminu?
Ég er að klára fyrsta árið af þremur
Hvað á að gera í sumar?
Ég verð að vinna á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki og einnig við tamningar og þjálfun.
Feykir óskar Svölu til hamingju með árangurinn.