Skellur í síðasta leik tímabilsins

Tindastólsmenn fóru enga frægðarför til Reykjavíkur í dag en þar spiluðu þeir við Þrótt Reykjavík. Hvorugt liðið hafði að neinu sérstöku að keppa en það voru heimamenn sem sáu um markaskorunina og settu sex mörk án þess að Stólarnir svöruðu fyrir sig.

Þróttarar voru komnir í 2-0 eftir stundarfjórðung og þannig var staðan í leikhléi. Þeir bættu síðan fjórum mörkum við í síðari hálfleik. Það bar helst til tíðinda að Marri fékk að spreyta sig síðustu 10 mínútur leiksins en aðeins 13 leikmenn voru í hópnum hjá Stólunum í dag.

Tindastóll endaði í áttunda sæti 1. deildar með 27 stig og markatöluna 34-42. Þá er útlit fyrir ágæta norðlenska stemningu í 1. deildinni að ári því Tindastóls og KA sem fyrir eru í deildinni þá koma upp úr 2. deildinni tvö norðlensk lið; Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og Völsungur Húsavík.

Fleiri fréttir