Skemmtilegasta hljómsveit landsins á leið í Skagafjörðinn
Brother Grass er á tónleikaferðalagi um landið og leggur leið sína í Skagafjörðinn miðvikudaginn 25. júlí með nesti í körfu, þvottabalann á þakinu og blússandi hamingju í farteskinu. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu plötu í desember í fyrra sem ber einfaldlega heitið Brother Grass og ætla þau að leika lög af henni ásamt nýju efni á Kaffi Krók. Þvottabrettið verður mundað, gítarhvíslarinn framkallar eitthvað undravert, þvottabalanum verður refsað og raddböndin þanin.
Brother Grass spilar alþýðutónlist eða bræðing af bluegrass, blús, folk, "old time mountain hillbilly music" í bland við frumsamið efni. Bygg í maga, rautt í tá, og dillandi Suðurríkjastemmning á íslensku sumarkvöldi. Hljómsveitina skipa Sandra Dögg Þorsteinsdóttir, Soffía Björg Óðinsdóttir, Hildur Halldórsdóttir, Ösp Eldjárn og Örn Eldjárn. Tónleikar hefjast kl. 21:30 og er aðgangseyrir 1500 kr.
Að auki mun hljómsveitin Brother Grass í samvinnu við Samfélagssjóð Landsvirkjunar og Barnamenningarsjóð bjóða yngri íbúum Skagafjarðar og nágrennis á þátttökutónleika fyrir utan Glaumbæ og Áskaffi sem haldnir verða samdægurs kl. 14:00. Meðlimir sveitarinnar munu spila á hin ýmsu hljóðfæri og hljóðgjafa sem eru í óhefðbundnari kantinum, eins og þvottabretti, þvottabala, keðjur, skeiðar, nefflautu, víbraslappa og gamlan síma. Hvetja þau gesti til að tína til potta, pönnur, kústsköft, saltbauka eða hvers kyns mögulega hljóðgjafa og taka þátt í að fremja skemmtilega og hressandi tónlist.
HÉR er hægt að heyra tónlist sveitarinnar Brother grass.