Skíðadeildin fær 10 milljónir frá sveitarfélaginu
Á síðasta fundi félags og tómstundanefndar Svf. Skagafjarðar var lagður fram samningur um rekstur skíðasvæðis í Tindastóli milli sveitarfélagsins og skíðadeildar UMF. Tindastóls. Þar skuldbindur sveitarfélagið sig til að greiða skíðadeild 8.000.000.- króna til uppbyggingar á skíðasvæðinu í ár, auk 2.000.000.-króna í rekstrarstyrk.
Inni í þessari upphæð eru laun starfsmanns skíðasvæðisins í átta mánuði á árinu auk þess að greitt er viðhald á troðara allt að 1,5 milljón króna. Skíðadeild skuldbindur sig til að annast rekstur skíðasvæðisins til ársloka 2012. Félags-og tómstundanefnd samþykkti samninginn fyrir sitt leyti enda rúmast hann innan fjárhagsáætlunar ársins segir í fundargerð.
Sigurður Bjarni Rafnsson formaður skíðadeildar sagði fyrri frétt Feykis um sama efni ekki rétta þar sem hún gaf það til kynna að vel yfir 10 milljónir kæmu frá sveitarfélaginu til þessa málaflokks enda varla á öðru að skilja í fundargerð nefndarinnar.
Fyrri fréttin hefur verið fjarlægð en hægt er að sjá fundargerðina HÉR.