Skíðasvæðið opið í dag

Skíðasvæði Tindastóls verður opið til kl 16 í dag en nú er snjókoma og hægviðri og færið alveg ágætt samkvæmt heimasíðu skíðadeildarinnar. Skemmtileg dagskrá hefur verið á svæðinu og verður engin breyting þar á í dag.

Dagskráin hófst klukkan tíu í morgun og stendur til klukkan fjögur í dag og er fólk beðið um að koma í eftirtektarverðum fötum.

Dagskráin frá hádegi lítur svona út:

  • kl. 12.00     Paint ball skotið í mark, ath. 1000 kr. fyrir 100 skot.
  • kl. 13.00     Þrautabraut fyrir 8 ára og yngri allir fá páskaegg að loknum tveim   ferðum.
  • kl. 13.00     Hæfnisbraut á brettum páskaegg í verðlaun, mikið hlegið.
  • Kl. 14:00     Snjóþotu- og sleðarall – Músík í fjallinu.

Annar í páskum 9. apríl

Kl. 10:00 – 16:00 Opið á skíðasvæðinu. Troðin göngubraut fyrir alla bæði langa og mjóa.

Fleiri fréttir