Skoða möguleika á dreifnámi á Hólmavík

Sveitarfélagið Strandabyggð skoðar nú möguleika á samstarfi við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra um dreifnám á Hólmavík en sveitarstjóri Strandabyggðar, ásamt þremur sveitarstjórnarfulltrúum, heimsótti skólann í síðustu viku.

„Þeir áttu fund með stjórnendum FNV, skoðuðu námsframboð skólans, kennsluaðstöðu og kynntu sér hugmyndir um dreifnám á Hvammstanga,“ segir á heimasíðu FNV.

Ef af verður er stefnt að því að dreifnámið hefjist haustið 2013.

 

Fleiri fréttir