Skólasetning Árskóla á fimmtudag

Árskóli á Sauðárkróki verður settur fimmtudaginn 23. ágúst nk. degi síðar en áætlað hafði verið. Að sögn Óskars Björnssonar skólastjóra kom það til vegna ófyrirséðra tæknimála. Vegna þeirra hafa upplýsingar ekki komist inn á heimasíðu skólans en foreldrar hafa fengið upplýsingar sendar í tölvupósti.

Setningin verður sem hér segir:

  • 3. bekkur kl. 10:00
  • 2. bekkur kl. 10:30
  • 1. bekkur kl. 11:00
  • 4. bekkur kl. 13:00
  • 5. bekkur kl. 13:30
  • 6. bekkur kl. 14:00
  • 7. bekkur kl. 14:30
  • 9. bekkur kl. 15:00
  • 10. bekkur kl. 15:30

8. bekkingar mæti til skólasetningar mánudaginn 27. ágúst kl. 10:00.

Nemendur 4. - 10. bekkjar mæti í Árskóla við Skagfirðingabraut, en nemendur 1. - 3. bekkjar í Árskóla við Freyjugötu. Innkaupalistar verða á heimasíðu skólans frá 21. ágúst.

Foreldrar nýrra nemenda í 2. - 10. bekk er bent á á að hafa samband við skólann sem fyrst.

Fleiri fréttir