Skortir fjármagn til að ljúka breytingu Þverárfjallsvegar

Vilji er fyrir því að ljúka breytingu á legu Þverárfjallsvegar/Strandvegar um Sauðárkrók á móts við norðurenda Aðalgötu en ekki hefur verið unnt að tryggja fjárveitingu til þeirrar framkvæmdar. Þetta kom fram á fundi Byggðarráðs Skagafjarðar í síðustu viku.

Í bókun fundargerðar kemur fram að Vegagerðin sé sammála því að þörf sé fyrir því að ljúka þessari framkvæmd. „Ekki hefur enn verið unnt að tryggja fjárveitingu til þeirrar framkvæmdar og er vísað til heildarendurskoðunar samgönguáætlunar 2015-2026, sem fer fram innan tveggja ára, vegna þess,“ segir í fundargerð.

Byggðarráð vísaði erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar.

Fleiri fréttir