Skoruðu sigurmarkið á lokamínútunum

Stúlkurnar úr Meistaraflokki Tindastóls áttu hörku spennandi leik við lið Grindavíkur sl. föstudagskvöld, 22. júní, á Sauðárkróksvelli og endaði hann með sigri Tindastóls 1-0.

Það var Rakel Hinriksdóttir sem setti boltann í markið fyrir Tindastól á lokamínútum leiksins. Eitt rautt spjald fór á loft í leiknum og var það Þórkatla Sif Albertsdóttir leikmaður Grindavíkur sem var vísað af velli en áður hafði hún fengið áminningu.  Í sama liði fékk Sarah Wilson einnig gult spjald en í Tindastólsliðinu fengu þær Rakel Hinriksdóttir og Sunna Björk Atladóttir sitt hvort gula spjaldið.

Tindastóll er nú í sjötta sæti í B-riðli með 6 stig en lið Grindavíkur er statt í því sjöunda með 3 stig.

Hér má skoða leikskýrslu á heimasíðu KSÍ.

Fleiri fréttir