Skotfélagið stóð uppi sem sigurvegari á Molduxamótinu
Sl. laugardag stóðu hinir síungu Molduxar fyrir öldungamóti í körfubolta í Síkinu á Sauðárkróki þar sem átta lið börðust um að ná bikarnum góða. Leikið var í tveimur riðlum og háðu efstu lið þeirra hörkurimmu í úrslitaleiknum.
Skotfélagsmenn frá Akureyri reyndust sterkari aðilinn í leiknum og náðu að landa sætum sigri á gestgjöfunum sem af stakri gestrisni gáfu eftir á síðustu mínútunum.
Mótið þótti takast vel og mörg góð tilþrif sáust, engin alvarleg meiðsli á mönnum sem þó gengu margir stirðir til búningsklefa.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá örlítið sýnishorn frá mótinu.
http://www.youtube.com/watch?v=XV86KDaB0pI