Skráning hafin á þátttöku í Evrópuviku
Evrópuvika undir yfirskriftinni „Open days“ verður haldin í Brussel dagana 10.- 13. október nk. Um er að ræða einn helsta viðburð sveitarstjórnarmanna í Evrópu, er fram kemur á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Yfirskrift Open Days þetta árið er „Fjárfestum framtíð Evrópu: hugvitsamlegur, sjálfbær hagvöxtur fyrir allan fyrir tilstuðlan héraða og borga." Þar verður fjallað um fyrirmyndarverkefni og reynslu sveitarstjórnarmanna alls staðar að úr Evrópu.
Evrópuvikan skiptist í tvo hluta, annars vegar málstofur, þar sem fjallað er um ýmislegt er lýtur að sóknarfærum í héruðum og sveitarfélögum og nokkurs konar vörusýningu hins vegar. Þar munu fjölmörg svæði vera með kynningar með það í huga að leita eftir samstarfsaðilum og fjárfestum.
Á annað hundrað uppákomur er á dagskrá Evrópuvikunnar. Það eru málþing, vinnustofur, sýningar og viðburðir, fara fram í samvinnu héraða, borga og sveitarfélaga, atvinnulífsins, alþjóðastofnana og háskólasamfélagsins. Íslensk sveitarfélög hafa tekið þátt í viðburðinum undanfarin ár en að þessu sinni kynnir Þróunarfélag Austurlands verkefni um samgöngur í dreifbýli sem styrkt er af Norðurslóðaáætlun ESB (NPP).
Næstu mánuði, þ.e. í september, október og nóvember, munu verða haldnir á fjórða hundrað viðburðir um alla Evrópu í tengslum við „Open Days“. Samtök íslenskra sveitarfélaga hvetur innlendar stofnanir og samtök (s.s. héruð, sveitarfélög, umsjónaraðilar uppbyggingarsjóða, atvinnuþróunarfélög, samtök atvinnulífs, háskóla) til að taka þátt og til að leggja skipuleggjendum Evrópuviku til hugmyndir að viðburðum.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni samband.is og skráning á málstofur er hafin. Þeir sem hafa áhuga á að sækja „Open Days“ hvattir til að skrá sig sem fyrst, en reynsla undanfarinna ára sýnir að viðburðir fyllast fljótt. Skráningarsíðu og allar nánari upplýsingar er að finna hér.