Fréttir

Rabarbarinn rís til virðingar á Blönduósi

Í fyrra var Rabarbarahátíð haldin í fyrsta skipti á Blönduósi og tókst framar vonum. Það var því ekki annað í stöðunni en að endurtaka leikinn. Hátíðin þetta sumarið fer fram laugardaginn 28. júní í gamla bænum á Blönduósi og hefst kl. 11:00. Feykir hafði samband við einn skipuleggjenda hátíðarinnar, Iðunni Vignisdóttur, sem hafði frá ýmsu spennandi að segja. Við hófum þó leik á að spyrja hverjir væru í forsvari fyrir hátíðinni í ár.
Meira

Maraþonmót hjá skagfirskum hestamönnum

Félagsmót Skagfirðings var haldið velli félagsins á Sauðárkróki laugardaginn 21 júní. Mótið var jafnframt úrtaka fyrir fjórðungsmót. Þátttaka var verulega góð og var lagt upp með að mótið yrði í 2 daga.
Meira

Sigurður Arnar ráðinn forstöðumaður framkvæmda á Veitu- og framkvæmdasviði Skagafjarðar

Á heimasíðu Skagafjarðar er sagt frá því að Sigurður Arnar Friðriksson hefur verið ráðinn í stöðu forstöðumanns framkvæmda á Veitu- og framkvæmdasviði hjá sveitarfélaginu Skagafirði. Hann hefur þegar hafið störf og býður Skagafjörður hann velkominn til starfa og óskar honum velfarnaðar í sínum störfum.
Meira

Kormákur/Hvöt með sigur á Grenivík

Síðari leikdagurinn í 32 liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins fór fram í gærkvöldi og þá mætti lið Kormáks/Hvatar piltunum í Magna á Grenivík. Leikurinn var kaflaskiptur því heimamenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en taflið snérist við í síðari hálfleik. Það fór svo að gestirnir úr Húnavatnssýslunni reyndust sterkari og unnu leikinn 1-3. Bæði liðin af Norðurlandi vestra verða því í pottinum þegar dregið verður í 16 liða úrslitin.
Meira

Það stefnir í sögulegan Grænan sal

Það er örugglega smá eftirvænting hjá einhverjum sem ætla að mæta í Bifröst nú á föstudagskvöldið en þar fara fram hinir árlegu tónleikar heimaalinna listamanna, Græni salurinn. Tónleikarnir að þessu sinni verða tileinkaðir minningu Gísla Þórs Ólafssonar, Gillons, sem lést snemma árs. Félagar hans í Contalgen Funeral munu troða upp á tónleikunum en langt er síðan hópurinn kom saman.
Meira

Sundlaugin á Hofsósi opnar klukkan fjögur í dag

Vakin er athygli á því að sundlaugin á Hofsósi er lokuð í dag, miðvikudaginn 25. júní, fram til kl. 16:00 vegna námskeiðs starfsmanna. Opnunartíminn verður því frá kl. 16:00 - 20:00.
Meira

Heilabrot – Nýsköpun fyrir betra samfélag

Heilabrot - vinnustofa í nýsköpun á sviði heilbrigðis- og velferðarmála á Norðurlandi - fór fram í síðustu viku í samvinnu Drift EA og Háskólans á Akureyri. Markmið verkefnisins var að skapa vettvang þar sem unnið er að þverfaglegum lausnum á áskorunum sem samfélagið á Norðurlandi stendur frammi fyrir í heilbrigðis- og velferðarmálum.
Meira

Að sækja gullið (okkar): grein 2 | Þröstur Friðfinnsson skrifar

Ný ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fór af stað fyrir hálfu ári með mörg fögur fyrirheit, undir fána bjartsýni og krafts. Stjórnarandstaðan hefur á köflum verið full smámunasöm, reynt að leggja hvern þann stein í götu nýrrar stjórnar sem færi hefur verið á. Það er miður, enda ekki nema eðlilegt að ný stjórn fái einhvern vinnufrið, fái tækifæri til að sýna hvað hún getur og koma góðum málum í framkvæmd.
Meira

Stólarnir áfram í Fótbolti.net bikarnum

Fyrsta umferðin í Fótbolti.net bikarnum í fótbolta hófst í gærkvöldi með leik Tindastóls og Árborgar á Sauðárkróksvelli. Leikið var við fínar aðstæður enda veðrið ljúft, hlýtt og stillt. Það fór svo að heimamenn tryggðu sig áfram í keppninni með 2-0 sigri.
Meira

Fjögur verkefni á Norðurlandi vestra fengu styrki

Fjórar umsóknir frá Norðurlandi vestra fengu brautargengi við aðra úthlutun úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar. Alls barst 91 umsókn í sjóðinn upp á rúmar 128 milljónir króna. Samþykktar voru 72 umsóknir og úthlutað tæpum 38,5 milljónum króna.
Meira