Skráning hafin í Sumar TÍM
Skráning í Sumar T.Í.M. - tómstundir, íþróttir og menningu fyrir 6-12 ára gömul börn (f. 2000-2006 ) í Skagafirði hófst í gær, mánudaginn 21. maí, en samkvæmt heimasíðu sveitarfélagsins er boðið upp á fjölbreytt tómstunda-, íþrótta- og menningarnámskeið á eftirfarandi stöðum:
- Sauðárkrókur: Námskeiðin hefjast mánudaginn 11. júní og eru til 10. ágúst, mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8:10 til 11:40 og frá kl. 13.10 til 14.40. Á föstudögum er „Föstudagsfjör“ frá 8:10 -12:00.
- Hofsós: Námskeiðin hefjast 11. júní til 5. júlí, mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9:00-13:00.
- Hólar í Hjaltadal: Námskeiðin hefjast mánudaginn 4. júní og standa til 29. júní, alla virka daga frá kl. 8:00 til 14:00.
Rafræn skráning fer fram á tim.skagafjordur.is en upplýsingar veitir Nanna Andrea í síma 660 4686. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 28. maí. Einnig er hægt er að ganga frá skráningu í Íbúagátt sveitarfélagsins.
Vakin er athygli á því að foreldrar með lögheimili í Sveitarfélaginu Skagafirði eiga rétt á Hvatapeningum einu sinni á ári, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum .
Nánari upplýsingar um Sumar TÍM má sjá á heimasíðu Sveitarfélagins Skagafjarðar.