Skráningargjald í skeiði verður kr. 1.000,- á Vindheimamelunum
Vegna skeiðkeppni á úrtökumóti hestamannafélaganna í Skagafirði, Léttfeta, Stíganda og Svaða, hefur verið ákveðið að skráningargjald á hvern hest sem tekur þátt í skeiðinu verður kr. 1.000,- Mótið verður haldið á Vindheimamelum sunnudaginn 10. júní nk. og hefst kl. 10:00.
Keppt verður í : B-flokki, barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, A-flokki, og tölti en einnig verða teknir tímar í 100 metra skeiði,150 metra skeiði og 250 metra skeiði.
Skráning hjá Fjólu Viktors á netfangið fjola@krokur.is fyrir klukkan 22. miðvikudaginn 6. júní. Skráningargjald á hross er kr. 3.000.- en kr.1.000,- í skeiðgreinum.
Greiðist inn á reikning 0161-26-269 kt.6202696979 og senda kvittun á netfangið fjola@krokur.is
Ráslisti og dagskrá verður auglýst nánar þegar nær dregur.