Skúrkar ógna á Króknum
Eftir rólega tíð hvað afbrot varðar á Sauðárkróki hafa nú tvö mál ratað á borð lögreglunnar á Sauðárkróki með skömmu millibili. Í fyrrakvöld var lögreglan kölluð til að húsi í bænum en þar höfðu tveir menn í hótunum við ungt heimilisfólk og heimtuðu af þeim peninga. Þá var brotist inn í sundlaugina í nótt og einhverjum fjármunum stolið.
Tveir menn höfðu í hótunum við ungt fólk á Sauðárkróki og kröfðu þau um peninga sem þeir vildu komast yfir. Hafði þetta gengið í einhvern tíma þegar lögreglan skarst í leikinn og kom fólkinu til aðstoðar. Handrukkararnir munu hafa viðurkennt fyrir lögreglu að um tilhæfulausar innheimtuaðgerðir væri að ræða og mun annar þeirra hafa verið handtekinn og fluttur til Reykjavíkur en hinn dvelur á Sauðárkróki. Stefán Vagn Stefánsson segir það ánægjulegt að þau sem fyrir hótuninni urðu höfðu samband við lögreglu og því hægt að grípa inn í. Oft væri ógjörningur að hjálpa til ef enginn kærir.
Inn um þessar dyr brutu þjófarnir sér leið, Guðmundur Gunnarsson sýnir blaðamanni ummerki eftir þrjótana.
Þegar starfsmenn Sundlaugar Sauðárkróks mættu til vinnu í morgun sáu þau að brotist hafði verið inn og peningum stolið. Innbrotsþjófarnir höfðu brotið sér leið gegnum dyr á jarðhæð á suðurhlið laugarinnar og náð að taka tvær innihurðir af lömunum svo þær lágu eftir. Þá brutu þeir glerlúgu við afgreiðsluborð og komust í peningakassann og náðu að hafa á brott með sér um 40 þúsund krónur. Samkvæmt lögreglunni á Sauðárkróki er verið að rannsaka málið en enginn liggur undir grun enn sem komið er. Stefán Vagn segir að grunur sé um fleiri innbrot en verið sé að kanna það. Þá liggur fyrir að bíl var stolið í nótt og hann sennilega notaður við hina vafasömu iðju.
Hér brutu þjófarnir glerið og komust að peningakassanum. Ragna Hansen situr fyrir innan en hún segir að um 40 þúsund krónur hafi verið í kassanum.
-Þetta er óvanalegt. Ástandið er búið að vera gott lengi en það er aldrei hægt að útiloka að svona gerist þótt við höfum verið heppin, segir Stefán.