Sláttur hafinn í Skagafirði
Það urðu margir undrandi í gær er sást til bóndans á Hlíðarenda í Óslandshlíð í Skagafirði byrja heyskap óvenju snemma þetta árið þar sem hann fór um sinumikið túnið, sló í lítinn flekk og rúllaði. Þegar betur var að gáð var það ekki heyleysi sem hrjáði bóndann þetta vorið heldur var þarna á ferðinni prófun á nýrri rúllubindivél.
Fulltrúar frá Vélaborg landbúnaði, Bifreiðaverkstæðinu Pardus á Hofsósi ásamt tæknimanni frá Leley verksmiðjunum voru þarna að prófa nýja rúllubindivél við mjög krefjandi íslenskar aðstæður. Að sögn Njáls H. Sigurðssonar, Þorsteinssonar frá Skúfsstöðum og sölumanns hjá Vélaborg landbúnaði, er hér um mjög byltingarkennda vél að ræða hvað varðar afköst og heymagns í rúllum. Eins og meðfylgjandi myndir sýna voru bændur mjög áhugasamir um vélina sem reyndist vel og vakti afköst hennar mikla athygli sem og auðveld stjórnun á stærð rúllubagganna.