Sláttur í sumar
Sláttuhópur á vegum Vinnuskóla Skagafjarðar er starfræktur í sveitarfélaginu yfir sumarmánuðina en hlutverk hans er fyrst og fremst að slá og raka gras í görðum eldri borgara og öryrkja og hefur sá hópur forgang. Þjónustan er einnig í boði fyrir almenning og hefjast pantarnir þann 1. júní nk.
Samkvæmt heimasíðu sveitarfélagsins hefst sláttur mánudaginn 4. júní og lýkur þann 17. ágúst, eða þegar vinnuskólanum lýkur.
Verðskrá er eftirfarandi:
- Garður < 500m2 fullt verð kr. 5.500.- / 3.300.- f. eldri borgara og öryrkja
- Garður > 500m2 fullt verð kr. 8.800.-/ 5.500.- f. eldri borgara og öryrkja.