Slökkviliðsstjórar landsins sameinuðust á Akureyri
Aðalfundur Félags slökkviliðsstjóra á Íslandi (FSÍ) var haldinn á Akureyri helgina 11. – 12. apríl síðastliðinn. Félagið vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum slökkviliða um land allt og er fundurinn mikilvægur vettvangur þar sem slökkviliðsstjórar landsins koma saman til að ræða málefni brunavarna, áskoranir í starfi slökkviliða og miðla reynslu sinni á því sviði. Undirritaður var samstarfssamningur um áframhaldandi þróun og rekstur Brunavarðar. Nýr samstarfshópur stofnaður um uppbyggingu æfingasvæða fyrir slökkvilið landsins og HMS kynnti tvær nýjar leiðbeiningar um heimildir slökkviliða til eftirlits og aðgangs að húsnæði og hins vegar beitingu stjórnvaldssekta
Á vef HMS segir að þau hafið tekið virkan þátt í fundinum sem samræmingaraðili og leiðbeinandi á sviði brunavarna. Fulltrúar HMS fluttu erindi um ýmis mál sem snerta starfsemi slökkviliða. Þar má nefna þróun og framtíðarsýn Brunagáttar sem er miðlæg gátt fyrir rauntímaupplýsingar um stöðu slökkviliða á Íslandi, og nýjar áherslur í forvarnarefni fyrir leikskóla. Þá voru einnig kynntar nýjar leiðbeiningar slökkviliða sem snúa að framkvæmd eldvarnaeftirlits og beitingu stjórnvaldssekta sem eru mikilvæg skref í átt að bættum brunavörnum og auknu öryggi í samfélaginu.
Samstarf um rekstur og þróun Brunavarðar
Á fundinum var undirritaður samstarfssamningur milli HMS og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) um áframhaldandi þróun og rekstur kerfisins Brunavarðar, sem heldur utan um eldvarnaeftirlit fyrir öll slökkvilið landsins. Samningurinn byggir á fyrra samstarfi frá árinu 2012 og hefur það markmið að tryggja samræmdan og skilvirkan rekstur kerfisins, ásamt því að þróa kerfið áfram með möguleika á tengingum við Brunagátt, sem mun efla yfirsýn og upplýsingaflæði enn frekar. HMS lýsir mikilli ánægju með samstarfið og sér tækifæri til áframhaldandi framfara á þessu sviði.
Samstarfshópur um uppbyggingu æfingasvæða
Á fundinum kynnti HMS einnig stofnun nýs samstarfshóps um uppbyggingu æfingasvæða fyrir slökkvilið landsins. Stofnun hópsins byggir á niðurstöðum starfshóps um málefni Brunamálaskólans, sem skilaði af sér tillögum árið 2022., Starfshópurinn lagði áherslu á mikilvægi þess að slökkviliðin hafi aðgang að öruggri og fjölbreyttri æfingaaðstöðu sem býður upp á markvissa og samræmda kosti við þjálfun og æfingar.
Nýr samstarfshópur verður skipaður fulltrúum frá slökkviliðunum ásamt sérfræðingum frá HMS. Hann mun kortleggja þarfir, búnað, aðstöðu og möguleika á samstarfi við aðra viðbragðsaðila, meta kostnað og gera tillögur um uppbyggingu og rekstur. Áætlað er að halda fyrsta fund hópsins í maí.
Skýrari rammi fyrir eftirlit og viðurlög
Tvær nýjar leiðbeiningar frá HMS voru kynntar á fundinum og snúa annars vegar að heimildum slökkviliða til eftirlits og aðgangs að húsnæði og hins vegar beitingu stjórnvaldssekta skv. 20. og 34. gr. laga um brunavarnir.
Leiðbeiningarnar eru liður í innleiðingu á lagabreytingum sem samþykktar voru árið 2023, í kjölfar brunans við Bræðraborgarstíg árið 2020 og í ljósi aukinnar tíðni bruna í atvinnuhúsnæði. Með breytingunum hafa slökkvilið nú skýrari heimildir til að sinna eftirliti með búsetu í atvinnuhúsnæði og aðgangs að íbúðarhúsnæði í tengslum við eldvarnareftirlit. Þá er slökkviliðsstjórum jafnframt veitt heimild til að beita stjórnvaldssektum við brot á lögum og reglugerðum um brunavarnir.
Markmiðið er að efla brunavarnir og tryggja öryggi fólks með því að skýra hlutverk og heimildir slökkviliða enn frekar. Leiðbeiningarnar verða gefnar út á vef HMS að loknu samráði við slökkviliðsstjóra og markar það mikilvægt skref í átt að samræmdri og markvissri framkvæmd eftirlits í þágu öryggis.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.