Snorri Styrkárs verður fjármálastjóri Fjarðabyggðar
Snorri Styrkársson verkefnastjóri hjá KS á Sauðárkróki hefur verði ráðinn fjármálastjóri Fjarðabyggðar og mun hefja störf þann 1. janúar 2013. Snorri hefur sinnt fjölmörgum verkefnum hjá Kaupfélaginu og dótturfyrirtækjum þess setið í stjórnum fyrirtækja og félaga sem og að sinna sveitarstjórnarstörfum í Skagafirði.
Snorri er með meistarapróf (MS) í alþjóðlegum fjármálum og bankastarfsemi frá Háskólanum á Bifröst og Kandídatspróf af þjóðhagskjarna (Cando econ) frá viðskipta-og hagfræðideild Háskóla Íslands.
Á vef Fjarðabyggðar er Snorra óskað velfarnar í störfum fyrir sveitarfélagið og tekur Feykir undir þær óskir.