Söfnuðu á sjöunda hundrað þúsund fyrir Krabbameinssjúka
Nemendur 7. og 8. bekkjar Varmahlíðarskóla afhendu í gær Krabbameinsfélagi Skagafjarðar peninga sem þeir söfnuðu með áheitahlaupi, sem þeir þreyttu í síðustu viku, og skemmtun sem þeir héldu daginn eftir. Ingibjörg Sigfúsdóttir tók við peninginum fyrir hönd Krabbameinsfélagsins og sagðist vera gráti næst yfir glæsilegum árangri krakkana en þeir söfnuðu hvorki meira né minna en 646.401 kr.
„Hugmyndirnar kom upp í tengslum við tóbakslausan bekk,“ segja krakkarnir við blaðamann Feykis en um er að ræða átak sem landlæknir hefur efnt til. Nemendur úr 7. bekk lögðu höfuðið í bleyti og komu með ýmsar hugmyndir, t.d. áheitahlaup sem svo varð fyrir valinu.
Í kjölfarið buðu þeir 8. bekk að vera með og þeir komu með hugmyndina að útbúa lag sem sent yrði í samkeppni landlæknis.
Í fyrstu vildu krakkarnir taka þátt í samkeppni, og um leið að vinna sér inn vinning, en svo snérist metnaður þeirra í að veita þeim sem glíma við krabbamein aðstoð eftir bestu getu.
Krakkarnir byrjuðu að safna áheitum sem samanstóð að mestu frá einstaklingum og voru margir hverjir útsjónasamir við söfnunina, t.d. var fundur veiðimannafélags heima hjá einum nemanda og gekk hún þá á línunna og safnaði áheitum. Sömu söguna er að segja hjá öðrum nemenda þar sem á heimilinu var haldinn fundur á vegum Loðdýrasambands Skagafjarðar.
„Svo fórum við bara á milli bæja og söfnuðum,“ segja þau. Hlaupið fór fram þann 17. apríl sl. og var farið svokallaðan Hegraneshring, sem telur alls 64,5 km.
Með strengi á skemmtuninni
Daginn eftir frumfluttu krakkarnir lagið sem þau sömdu til að senda í samkeppni landlæknis með viðhöfn - þau bökuðu, helltu upp á kaffi og héldu skemmtun. „Við sömdum texta við lagið „Someone like you“ eftir Adele og fjallar hann um strák sem deyr úr krabbameini af völdum reykinga,“ útskýrir stúlka úr hópnum.
Fjöldi foreldra voru samankomnir á skemmtuninni og söfnuðust þá nokkrir aurar til viðbótar með söfnunarbauk. Aðspurðir hvort þeir hafi ekki verið þreyttir eftir hlaupið svöruðu þau: „Jú, við vorum með svolitla strengi á skemmtuninni,“ segja þau og hlægja.
Lagið hefur verið tekið upp og kemur til með að vera birt á netinu von bráðar.