Sölvi Sveinsson sendir frá sér bókina Lög unga fólksins
Út er komin bókin Lög unga fólksins eftir Skagfirðinginn Sölva Sveinsson. Eins og fram kemur á bókarkápu er Sölvi lesendum að góðu kunnur fyrir margvísleg ritverk sín, ekki síst um íslenskt mál en í þessari bók kveður við annan tón „þar sem hin skáldlega æð fær útrás í hnyttnum smásögum sem þó snerta einnig á alvörumálum“.
„Í Lögum unga fólksins eru átta sögur sem gerast flestar í ótilgreindum kaupstað úti á landi eða í næsta nágrenni hans, en einnig í Reykjavík og austur á Reyðarfirði. Sögurnar heita Leiðist yður Púshkin, fröken?, Vorkvíði, Kvöldhúm í júní, Ættanna bland, Þegar nóg er búið, Rökkrið í blóðinu, Lög unga fólksins, Rakarinn með hnífinn,“ útskýrir Sölvi og heldur áfram: „Undirtitillinn er átta tilbrigði við stef og vísar til þess að allar fjalla sögurnar um roskið fólk, kannski á mínum aldri eða svo, en ekki þó mína kynslóð heldur hina næstu á undan, kynslóð foreldra okkar. Lög unga fólksins var einu sinni vinsæll útvarpsþáttur en hafa ber í huga að lög hafa líka aðra merkingu, menn tala um lög og reglu.“