Sparisjóður Skagafjarðar afhendir Björgunarsveitum í Varmahlíð og á Hofsósi gjafir
Milli jóla og nýárs afhenti Sparisjóður Skagafjarðar Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlíð og Björgunarsveitinni Gretti Hofsósi skóflur og öflug Led Lenser ljós sem nýtast við leitar- og björgunarstörf. Með þessum gjöfum vill Sparisjóður Skagafjarðar þakka björgunarsveitunum í Skagafirði fyrir óeigingjarnt starf öllum til hagsbóta og jafnframt ítreka hvatningu til annarra að styðja við bakið á sveitunum.
Sigurbjörn Bogason útibússtjóri afhendir Þorsteini Frímanni Guðmundssyni formanni Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð góðar gjafir.
„Sparisjóður Skagafjarðar er stoltur að vera stuðningsaðili björgunarsveitanna ásamt að vera öflugur stuðningsaðili við menningarstarf og íþróttahreyfinguna og efla þannig innviði skagfirsks samfélags,“ segir í fréttatilkynningu frá Sparisjóðnum.
Samkvæmt fréttatilkynningunni ber að þakka Eirberg umboðsaðila LED lenser ljósa sem gáfu góðan afslátt þegar leitað var til þeirra eftir stuðningi.