Sparisjóður Skagafjarðar veitir Sauðárkrókskirkju 300.000 króna styrk

Úthlutunarnefnd styrkja hjá Sparisjóði Skagafjarðar ákvað að veita Sóknarnefnd Sauðárkrókskirkju styrk frá sjóðnum til uppsetningar flóðlýsingar við Sauðárkrókskirkju að upphæð kr.300.000.- í tilefni 120 vígsluafmælis kirkjunnar.

 

Meðfylgjandi mynd var tekin við þetta tækifæri en það er Sigurbjörn Bogason útibússtjóri sem afhendir Brynjari Pálssyni formanni sóknarnefndar og Sigríði Gunnarsdóttur sóknarpresti styrkinn.

Fleiri fréttir