Sparisjóðurinn styrkir Skagfirðingasveit

Sparisjóður Skagafjarðar ákvað að styrkja Björgunarsveitina Skagfirðingasveit og hefur nú afhent henni skóflur ásamt öflugum Led Lenser höfuðljósum og handluktum sem nýtast við leitar- og björgunarstörf.

Leitað var til ráðgjafa hjá Eirberg en þeir eru sölu og þjónustu aðili Led Lenser ljósa. „Ber að þakka Eirbergi fyrir þeirra framlag og ekki úr vegi að nefna að þeir gáfu eftir hluta söluverðs,“ segir í fréttatilkynningu frá Sparisjóðnum.

Sparisjóður Skagafjarðar hvetur önnur fyrirtæki til að styðja við bakið á björgunarsveitunum. „Björgunarsveitin Skagfirðingasveit sinnir miklu og óeigingjörnu starfi öllum til hagsbóta. Sparisjóður Skagafjarðar er stoltur að því vera styrktaraðili sveitarinnar,“ segir loks í fréttatilkynningunni.

Fleiri fréttir