Stapi boðar til sjóðsfélagsfundar
Stjórn Stapa lífeyrissjóðs hefur boðað til sjóðfélagafunda í samstarfi við stéttarfélögin en tilefni fundanna er nýleg skýrsla um úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008. Fundur verður á Blönduósi þann 1. mars nk. kl. 20, í sal Samstöðu að Þverbraut 1. Sjóðfélagar eru hvattir til að láta sjá sig taka þátt í umræðum um efni skýrslunnar.
Fundirnir verða haldnir sem hér segir:
29. febrúar Húsavík, sal Framsýnar Garðarsbraut 26
1. mars Blönduós, sal Samstöðu Þverbraut 1
5. mars Höfn, sal AFLs Víkurbraut 4
6. mars Reyðarfjörður, Námsverinu Búðareyri 1
7. mars Vopnafjörður, í sal AFLs Lónabraut 4
8. mars Akureyri, Lionssalnum Skipagötu 14 4.hæð
Skýrsluna í heild sinni má finna hér, á heimasíðu Stapa lífeyrissjóðs.