Fréttir

Smashburger tacos og súkkulaðikaka | Matgæðingur Feykis

Fyrsti matgæðingurinn á þessu ári var Fanney Rós Konráðsdóttir en hún er fædd og uppalin á Sauðárkróki og býr þar með syni sínum, Sebastían Leó. Fanney er kennari í Árskóla og er með umsjón í 4. bekk þetta árið.
Meira

Heimir skrapp í afmæli

Á sumardaginn fyrsta skruppu drengirnir í karlakórnum Heimi til Reykjavíkur. Tilefnið var ekki lítið því Heimir var boðskór á afmælistónleikum karlakórs Reykjavíkur sem fagnar 100 ára afmæli um þessar mundir. Tónleikarnir voru í Langholtskirkju og var fullt hús, ca. 430 manns. Kórarnir sungu fyrst sitt í hvoru lagi og síðan sameinaðir og var það stór og mikill hljómur. Það voru ánægðir tónleikagestir sem þökkuðu fyrir sig með miklu klappi.
Meira

Diskósúpa í Hlöðunni á Stórhól laugardaginn 25. apríl kl. 12-16

Eins og oft áður verður mikið um að vera á Stórhóli og Starrastöðum um helgina. Á Stórhóli verður „Diskósúpa” í boði Slow food á Íslandi og Rúnalistar. Til þess að komast að því hverslags súpa það er verður að mæta en súpan fæst frítt. Síðan verður tónlist og fleira gaman . Myndabingó verður fyrir börnin.
Meira

Kammerkórinn treður upp á Blönduósi í kvöld

Skagfirski kammerkórinn hefur verið á tónleikarúnti núna í vor. Kórinn varð 25 ára í fyrra og er hvergi nærri hættur. Síðustu tónleikarnir að sinni verða í Blönduóskirkju kvöld 24. apríl kl. 20.00.
Meira

Þurrlýsi hlýtur titilinn Norðansprotinn 2026

Verkefnið Þurrlýsi hlaut á miðvikudag titilinn Norðansprotinn 2026 á lokaviðburði nýsköpunarkeppninnar sem fram fór í Messanum í Drift á Akureyri. Alls voru sjö verkefni kynnt til leiks og var Þurrlýsi valið sigurvegari að loknum kynningum og mati dómnefndar. Sem sigurvegari hlaut verkefnið 1.000.000 króna styrk frá Landvættum slhf., fjárfestingasjóði í rekstri Axum verðbréfa.
Meira

A-listinn býður sig fram í Húnabyggð

Það fór því miður framhjá Feyki að nýtt framboð kynnti framboð í Húnabyggð upp úr miðjum mars. Þar var um að ræða A-listann, óháð framboð sem ætlar sér að fara fram fyrir hönd fólksins í Húnabyggð og ætlar að hafa hagsmuni allra íbúa sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Meira

Frystiklefi Dögunar tekur á sig mynd

Feykir sagði frá því í nóvember að rækjuvinnslan Dögun á Sauðárkróki hefði hafið framkvæmdir við byggingu 1600 fermetra frystiklefa á Hesteyri á Sauðárkróki. Ekki er annað að sjá en að verkinu miði vel en í vetur var plata steypt og nú hefur grindin verið reist.
Meira

Þrír sameiginlegir framboðsfundir áætlaðir í Skagafirði

Það styttist óðum í sveitarstjórnarkosningar en þær fara fram laugardaginn 16. maí næstkomandi og því um þrjár vikur þangað til kosið verður. Samkvæmt upplýsingum Feykis er stefnt að því að halda þrjá sameiginlega kosningafundi í Skagafirði og verður sá fyrsti í Miðgarði þann 3. maí.
Meira

Geta hráefniskaup haft áhrif á byggðaþróun? | Elínborg Erla Ásgeirsdóttir skrifar

Á hverjum virkum degi eru framreiddar yfir 1000 opinberar máltíðir í Skagafirði, t.d í leikskólum, grunnskólum og öðrum stofnunum sveitarfélagsins. Að jafnaði eru um 250 virkir dagar á ári, svo við erum að tala um yfir 250.000 máltíðir ár hvert. Þó miðað sé við hóflegt hráefnisverð má því áætla að kostnaðurinn nemi hundruðum milljóna.
Meira

Ótrúlega mikil gleði fólgin í því að vinna saman alþjóðlega

Sagt var frá því í byrjun vikunnar að Handbendi brúðuleikhús á Hvammstanga stæði fyrir uppsetningu á splunkunýrri brúðuleikhússýningu, Rót, hjá Leikfélagi Akureyrar nú á laugardaginn og hefst sýningin kl. 16:00. Feykir spurði listakonuna Gretu Clough, sem er bandarísk að uppruna, aðeins út í sýninguna en Greta býr á Hvammstanga ásamt manni sínum, Sigurði Líndal, og dóttur þeirra. Fyrst var spurt hvernig sagan hefði komið til.
Meira