Starfsemi Háholts hættir í lok júní
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu meðferðarheimilisins Háholts í Skagafirði en uppi eru áform um að loka heimilinu og færa starfsemina á höfuðborgarsvæðið. Rekstraraðilar meðferðarheimilisins og Barnaverndarstofa eru hins vegar sammála um að forsendur fyrir endurnýjun samningi séu ekki lengur til staðar og hafa gert samkomulag um að starfseminni verði hætt í lok júní nk.
Á fundi byggðarráðs í síðustu viku kom fram að ráðið teldi það undarleg vinnubrögð af hálfu ráðuneytis og Barnaverndarstofu að aldrei hafi verið rætt við forsvarsmenn sveitarfélagsins í aðdraganda þessarar ákvörðunar en Sveitarfélagið Skagafjörður er eigandi húsnæðis sem hýsir starfsemi Háholts. Sveitarfélagið byggði húsið sérstaklega undir starfsemina á sínum tíma og fór í miklar endurbætur á húsnæðinu árið 2014 til að aðlaga það betur að starfseminni. Samningur sveitarfélagsins og barnaverndarstofu um húsnæðið undir meðferðarheimilið rennur út í ágúst á næsta ári.
„Meginástæða þess að starfseminni er hætt er sú að eftirspurn eftir meðferðarrýmum hefur verið afar slök í mörg ár. Kemur þar margt til en helsta ástæðan er sú að nýjungar í meðferð utan stofnana, á vettvangi fjölskyldu og nærsamfélags, svonefnd Fjölkerfameðferð; MST, hafa skapað nýjar forsendur og eru nú mest í eftirspurn samhliða því að dregið er úr stofnanameðferð. Í því felst að þeir einir vistast nú á stofnanir sem eiga við að stríða fjölþættan og flókinn vanda sem krefst aðkomu sérfræðinga á ýmsum sviðum sem óvíða er að finna utan höfuðborgarsvæðisins“ segir Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu.
Þegar hann er spurður út í árangur meðferðar á Háholti í samanburði við önnur heimili, segir hann það flókið fyrirbæri þar sem markhópar og erfiðleikastig einstaklinganna í meðferð er mjög misjafnt.
Langmesta eftirspurnin í MST
Alls voru sex einstaklinga innritaðir í meðferð árið 2016 á Háholti og tveir dvöldu um tíma sem innritaðir voru árið á undan. Þeir átta einstaklingar sem komu við sögu í meðferð Háholts árið 2015 voru aldrei vistaðir þar á sama tíma. Að jafnaði var fjöldi skjólstæðinga á heimilinu á bilinu einn til þrír á hverjum tíma.
Að Háholti frátöldu eru meðferðarheimili í Eyjafirði og Rangárvöllum auk meðferðar- og greiningarstöð ríkisins, Stuðlar, í Reykjavík. Alls innrituðust 112 einstaklingar í meðferðarúrræði Barnaverndarstofu árið 2016 og 47 komu við sögu til viðbótar sem innritaðir voru árið á undan. Bragi segir að langmest eftirspurn sé í Fjölkerfameðferðina MST sem er meðferð utan stofnana.
Þrátt fyrir að hugmyndir um byggingu meðferðarheimilis fyrir börn í Reykjavík næðu fram að ganga, myndi meðferðar- og greiningarstöðin Stuðlar áreiðanlega starfa áfram að mati Braga og líklega eitt heimili á landsbyggðinni. Þó segir hann að ekki sé unnt að fullyrða um þetta nú því eftirspurn eftir meðferð ráði framboðinu.
„Það er ætíð sorglegt að þurfa að loka jafn stórum vinnustað eins og Háholt er og missa þannig reynslumikið og gott fólk úr störfum. Ég vil þakka starfsfólkinu fyrir góð störf og óska því velfarnaðar í framtíðinni. Raunar vil ég þakka rekstaraðilum, sveitarstjórninni og Skagfirðingum öllum fyrir þessi tæplega 20 ár sem meðferðarheimilið hefur starfað,“ segir Bragi Guðbrandsson að lokum.