Starfsfólk Svf. Skagafjarðar hefur ekki fengið laun sín greidd
Bilun var í greiðslukerfum Reiknistofu bankanna í gær sem olli truflunum í heimildagjöf greiðslukorta og hraðbönkum. Einnig urðu viðskiptavinir verslana fyrir óþægindum þar sem erfitt reindist að greiða með greiðslukortum. Starfsfólk Svf. Skagafjarðar hefur ekki fengið laun sín greidd.
Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar segir að í gær hafi laun hafi verið gjaldfærð útaf reikningi sveitarfélagsins kl 13:02 en af f óútskýrðum örsökum hafi launin ekki borist inn á bankareikninga starfsmanna. „Búið er að hafa samband við bankann og leita skýringa og vonum við að málið leysist sem allra fyrst. Beðist er velvirðingar á þessum óþægindum,“ segir á skagafjordur.is