Starfsmannafundur í Safnahúsi í dag

Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar boðar Sveitarstjórnin til starfsmannafundar í Safnahúsinu á Sauðárkróki í dag kl. 15. Þar mun Haraldur Líndal, rekstrarráðgjafi, kynna rekstrarúttekt sína á sveitarfélaginu og kynna sparnaðartillögur en hann var ráðin til þess verkefnis snemma á árinu.

Þar sem  margir starfsmenn sveitarfélagsins eru í sumarfríi hefur verið  ákveðið að hafa annan samskonar fund í fyrstu viku september nk. Ráðhúsinu á Sauðárkróki verður lokað kl 15 vegna þessa fundar.

Fleiri fréttir