Stefnir í skemmtilegan laugardag á Íslandsmóti

Í dag laugardag, verður þétt og skemmtileg dagskrá á Íslandsmótinu á Vindheimamelum en dagskráin hefst með forkeppni í Tölti T1 og T2. Þá verður krýndur fyrsti Íslandsmeistarinn á þessu móti þegar gæðingaskeið verður riðið. Eftir kaffi hefjast B úrslit í fimmgang og fjórgang. 

Þá verður grill, en hinir alræmdu Riddarar Norðursins munu sjá um að haldi uppi fjörinu við grillið.  Að því loknu verður keppt í 100 m skeiði og mun þá skýrast hver hreppir íslandsmeistaratitilinn í þeirri grein. Síðasta atriðið á vellinum er síðan B-úrslit í tölti T1.

Hljómsveitin Þúfnapex mun síðan stíga á stokk í Skálanum en þá hljómsveit prýðir hin sunnlenska snót Herdís Rútsdóttir frá Skíðbakka ásamt Skagfirðingunum Sigvalda og Jakobi Gunnarssonum.  Þegar dagskrá líkur á Melunum tekur við hestamannaball í Miðgarði með stuðgrúppunni Spútnik.

Veðurspá morgundagsins er góð, en samkvæmt vedur.is þá er spáin fyrir Nautabú (næsta veðurathugunarstöð við Vindheimamela) þannig að spáð er þurru veðri, hægri sunnanátt og sólarglætu um hádegisbil á laugardegi.

Fleiri fréttir