Stefnir í stórsýningu um helgina
Meðal gesta á Tekið til kostanna í ár er hinn nýkrýndi meistari meistaranna á Suðurlandi, Artimisia Bertus sem mætir með stóðhestinn Óskar frá Blesastöðum. Þá kemur meistara stykki úr hrossarækt Kristins Hugasonar, Krókur frá Ytra-Dalsgerði sem Anna Valdimarsdóttir sýnir. Sigurður Óli Kristinsson kemur með brot af því besta úr sínu hesthúsi, auk þess sem fleiri góðir gestir víða af landinu munu taka þátt í sýningunni.
Hinar mögnuðu Dívur úr Húnaþingi vestra mæta með sína frábæru munsturreið. Von er á glæsilegu atriði frá FT félögum í Skagafirði þar sem 10 þekktir tamningamenn og reiðkennarar koma fram. Þá munu fjölbrautarskólanemendur á Sauðárkróki, Fás-Fákar, tefla fram atriði og einnig unglingar úr Skagafirði.
Þrjú landsfræg hrossaræktarbú koma fram með bússýningar, það er frá keppnishrossaræktunarbúi ársins, Efri-Rauðalæk í Eyjafirði, frá Árbæjarhjáleigu/Skarði í Landsveit og frá Vatnsleysu í Skagafirði.
Stóðhestar munu koma fram í sóló atriðum, dúói, sérstakri nýstárlegri stóðhestakeppni og í stóru stóðhestaatriði sem verður nokkurskonar stóðhestaveisla.
Minningu Sigurbjörns Þorleifssonar frá Langhúsum verður tileinkað eitt atrið og þá verður fluttur nokkurskonar leikþáttur eftir Agnar Gunnarsson á Miklabæ þar sem m.a. kemur fram söngkonan Helga Rós Indriðadóttir.
Þá koma nokkrar úrvals klárhryssur, alhliðahryssur, kappreiðavekringar og atriði sem nefnist “Tvær tíur”.
Eftir sýninguna verður boðið upp á lifandi músík í anddyri reiðhallarinnar og síðan er dansleikur á Mælifelli.
Munið að tryggja ykkur miða á sýninguna í tíma, forsala á Orkusölunni Bláfelli, Sauðárkróki.
Þá hefst kynbótasýningin kl. 13: 00 á föstudag (ekki kl: 10:00) og yfirlit á laugardag kl: 10:00 og í framhaldi reiðkennslusýning Hólaskóla, opið á Sögusetrinu á Hólum og síðan hefst stórsýningin kl: 20:00 á laugardagskvöldið (21. apríl).