Stelpurnar í Tindastól þurfti að lúta í gras á Ísafirði
Meistaraflokkur kvenna Tindastóls lagði land undir fót og keyrði vestur á firði og lék við BÍ/Bolungarvík sl. laugardag í fyrstu deildinni. Leikurinn var mikill baráttuleikur að sögn Péturs Björnssonar þjálfara liðsins en mikil áhersla var lögð á að stöðva erlendu leikmenn BÍ/Bolungarvíkur sem sennilega eru tveir bestu leikmenn deildarinnar.
-Við áttum í ákveðnum vandræðum í fyrrihálfleik með þær og Vestfirðingarnir meira með boltann og náðu að skora mark um miðjan hálfleikinn. Við áttum þó tvo ágæta möguleika á mörkum úr föstum leikatriðum. Í seinni hálfleik náðum við smátt og smátt betri tökum á leik okkar og segja má að við vorum betra liðið er leið á leikinn og áttum fín færi til að jafna en því miður tókst það ekki. Rakel Hinriks átti skalla í stöng, Hugrún komst ein á móti markmanni og Harpa átti skot í varnarmann þegar markmaður þeirra var hvergi nálægur markinu, svo eitthvað sé nefnt af færum okkar. Ég var mjög ánægður með baráttu stelpnanna í leiknum og raun nokkuð sáttur við okkar leik en þetta vildi ekki detta með okkur í þetta skiptið, segir Pétur.
Sem stendur er liðið í 6. sæti deildarinnar með 9 stig en að sögn Péturs er markmiðið að halda sér um miðja deild og því verður að halda áfram og kroppa í nokkur stig í viðbót. Næsti leikur Tindastóls er við Álftanes, úti, á föstudaginn og þar verður allt lagt í sölurnar til að ná í 3 stig.