Stemmningin góð á Þórudeginum á Hólum
Stuðningsfólk Þóru Arnórsdóttur um land allt tók höndum saman sl. sunnudag og haldnir voru ríflega 90 viðburðir á svokölluðum Þórudegi. Norðurland vestra var þar ekki undanskilið því haldin var grillveisla fyrir utan Bjórsetrið á Hólum í Hjaltadal.
Samkvæmt Guðmundi Birni Eyþórssyni, hjá Bjórsetri Íslands, var stemmningin góð á Þórudeginum á Hólum og áætlar hann að um 25-30 manns hafi komið þar saman, „sem telst nú bara allgott á sunnudagseftirmiðdegi þegar sumarfrí eru byrjuð,“ segir hann.
Það voru Bjarni Kristófer Kristjánsson og Guðrún Helgadóttir sem sáum um að skipuleggja Þórudaginn og þar var boðið upp á pylsur og með því.
„Það er nú ávallt góð stemmning þegar fólk tekur sig saman hér heima að Hólum og grillar fyrir utan Bjórsetrið, tala nú ekki um af heimabjórinn Vesturfari er tengdur í dælurnar,“ segir Guðmundur í lokin.