Stólarnir aftur á flug eftir stórsigur í Breiðholtinu
Eftir lánleysi og erfiðan leikmanna-skipta-glugga í júlí náðu Tindastólsmenn að hrista sig saman og vinna góðan sigur á liði ÍR í Breiðholtinu í gærkvöldi. Bæði lið höfðu átt í brasi í síðustu leikjum, Stólarnir tapað þremur leikjum með eins marks mun á meðan ÍR-ingar höfðu staðið fyrir bílskúrsútsölu í vítateig sínum. Þeir héldu henni áfram í gær og Stólarnir sigruðu 4-0.
Markatala ÍR í síðustu fjórum leikjum (þessi meðtalinn) ku vera 1-15 og eru Breiðhyltingar sem stendur í fallsæti með 14 stig, líkt og Stólarnir fyrir leikinn en með sigrinum komst Tindastóll í 17 stig og er í áttunda sæti eftir 14 umferðir.
Fyrri hálfleikur var bragðdaufur í gær en Tindastólsmenn voru líklegri til afreka en ekki tókst liðunum að skora. Í síðari hálfleik hljóp á snærið hjá gestunum. Max Touloute fékk reyndar það sem af lýsingum má dæma var eitthvað besta færi sem sést hefur í fótboltaleik en tókst víst að setja boltann í hliðarnetið. Hann bætti fyrir mistökin á 66. mínútu þegar hann skilaði vítaspyrnu í mark ÍR eftir að markvörður ÍR hafði brotið á Steven Beattie. Markmanninum var vísað af velli og eftirleikurinn reyndist Stólunum léttur því heimamenn lögðust sjálfviljugir í gras við þetta mótlæti.
Annað mark Stólanna gerði nýjasta viðbótin við lið Tindastóls, Colin Helmrick, með sinni fyrstu snertingu eftir sendingu frá Max. Atli Arnarsson gerði þriðja markið á 81. mínútu eftir laglegan undirbúning Benjamíns Gunnlaugssonar. Steven Beattie gerði síðan fjórða og síðasta mark Stólanna á 92. mínútu eftir klafs í teig heimamanna.
Sigurinn var afar mikilvægur fyrir Tindastólsmenn en liðið hefur í heildina leikið vel í sumar. Stólarnir hafa gert næst flest mörk liðanna í deildinni, 27, og fengið á sig 22 og meðaltalið í leikjum Tindastóls því u.þ.b. þrjú og hálft mark í leik. Næsti leikur er hér heima gegn KA fimmtudaginn 16. ágúst kl. 19:00.