Stólarnir mæta Njarðvíkingum í kvöld
Tindastóll heimsækir Njarðvík í Domino's deildinni í kvöld en Njarðvíkingar sitja í 9. sæti deildarinnar með 6 stig en Stólarnir hafa ekki ennþá unnið leik í deildinni. Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður sýndur í beinni netútsendingu.
Samkvæmt heimasíðu Tindastóls eru Njarðvíkingar með 6 stig eftir sigra á Þór Þorlákshöfn, Fjölni og KFÍ. „Tindastóll leitar hins vegar ennþá að fyrsta sigrinum í deildinni og nú þegar allar bikarkeppnir eru úr sögunni, ætti fókusinn vonandi að geta færst af fullu afli á deildina,“ segir á heimasíðu Tindastóls.
Stuðningsmenn ætla að hittast á Mælifelli og gæða sér á veitingum yfir leiknum en eins og áður renna 25% af veitingasölunni til körfuknattleiksdeildarinnar. Leikurinn verður sýndur á Njarðvík TV í samvinnu við Sport TV.
Mikilvægur mánuður framundan
Á heimasíðu Tindastóls kemur fram að desembermánuður sé afar mikilvægur mánuður miðað við stöðu liðsins í deildinni. Eftir Njarðvíkurleikinn er komið að heimaleik við ÍR fimmtudaginn 13. desember og eftir það verður fer fram leikur við Skallagrím sem áður hafði verið frestað.
„Það eru því færi á því í jólamánuðinum að rífa sig upp og hala inn stig fyrir jólafríið,“ segir loks á heimasíðunni.