Stólarnir nældu í stig í Breiðholtinu
Tindastóll sótti Leikni heim í Breiðholtið í 1. deild karla í gær. Leikurinn var kaflaskiptur en heimamenn þó sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og voru yfir í hálfleik. Stólarnir jöfnuðu hins vegar undir lok leiksins og liðin skiptu því stigunum á milli sín. Lokatölur 1-1.
Ólafur Hrannar Kristjánsson gerði mark Leiknis á 41. mínútu en samkvæmt frásögn á vef Tindastóls notaði hann hendina til að skora eftir hornspyrnu en forystan var verðskulduð.
Leikmönnum Tindastóls hafði gengið illa að halda boltanum innan liðsins en leikur liðsins skánaði í síðari hálfleik. Sebastian Furness markvörður Tindastóls sá engu að síður til þess að Leiknismenn næðu ekki að auka forskotið en það var ekki fyrr en á 90. mínútu sem Stólarnir jöfnuðu leikinn en þá skoraði Ben Everson úr víti eftir að leikmaður Leiknis hafði handleikið knöttinn. Stólarnir vildu fá annað víti skömmu síðar en dómarinn taldi að brotið hefði verið á Dominic Furness utan teigs og aukaspyrnuna náðu gestirnir ekki að nýta og lokatölur því 1-1.
Tindastólsmenn geta spilað mun betur en þeir gerðu gegn Leikni en engu að síður var það hið besta mál að ná stigi út úr leiknum. Þá var það gleðilegt að besti leikmaður Tindastóls í fyrra, Arnar Sigurðsson, kom inná í gær en hann hefur verið frá vegna meiðsla frá áramótum. Næstkomandi laugardag eiga Stólarnir síðan heimaleik gegn Hetti frá Egilsstöðum en Hettirnir hafa staðið sig með ágætum í 1. deildinni í sumar, hafa krækt í fleiri stig en Stólarnir og hafa byggt á sterkum varnarleik.