Stólarnir taka á móti Stjörnunni í kvöld

Stjarnan heimsækir Tindastólsmenn í Síkið í kvöld en bæði lið hafa unnið báða sína leiki í riðlinum til þessa og eru því efst í Lengjubikarnum og jöfn með tvo sigra, samkvæmt heimasíðu Tindastóls. Það er því afar mikilvægt að landa sigri í kvöld upp á framhaldið í keppninni.

Lið Stjörnunnar kom í heimsókn í fyrsta leik tímabilsins í Domino's deildinni og tók með sér tvö stig úr Síkinu.

„Stigamaskínan Marvin Valdimarsson Stjörnumaður hefur farið gríðarlega mikinn í upphafi móts og hefur skorað mest allra Íslendinga í Domino's deildinni eða 24 stig að meðaltali og hefur verið á svakalegu flugi í sókninni. Justin Shouse þekkja allir, kappinn sá kom til skjalanna í þriðja leikhluta í leik liðanna á dögunum og sýndi þá og sannaði að hann er ekkert að gefa eftir. Þá er ógetið kappa á borð við Jovan, Fannar, Brian Hill, Dags Kár og fleiri áhugaverðra leikmanna í Stjörnuliðinu,“ segir um lið Stjörnunnar heimasíðu Tindastóls.

Á heimasíðunni kemur einnig fram að Tindastólsstrákarnir hafa verið að spila oft á tíðum ágætlega en hafa ekki haft taugar til að klára leikina svo vel sé í Domino's deildinni þó tækifæri hafi verið fyrir hendi. „Mikilvægt er að þeir haldi þó áfram að vinna í sínum leik og þróa hann og þá er Lengjubikarinn kærkominn,“ segir loks á heimasíðunni.

Dómarar verða þeir Sigmundur Már Herbertsson og Halldór Geir Jensson.

Leikurinn hefst kl. 19.15.

 

Fleiri fréttir